Ég hef mikið verið að hugsa til ykkar undan farið og verið að
velta fyrir mér hvar þið eruð stödd í lífinu og langar svoldið til
að allir skrifi nokkrar línur um hvað þeir eru búinir að vera gera
og hvað er planað hjá þeim. Að því tilefni hef ég ákveðið að
brjóta ísin og skrifa stutta færslu um hagi mína og segja
ykkur hvað hefur drifið á daga mína síðan í Tyrklandi ...sem var
ábyggilega í síðasta skiptið sem ég sá flest ykkar.
Margt hefur gerst hjá mér síðasta hálfa árið ég er búin að
flytja tvisvar, skipta um vinnu tvisvar, byrja í háskólanámi og
hætta, kaupa mér bíl, kynnast ástinni í lífi mínu og varð nýlega
hundamamma 
En eins og staðan er núna þá er ég er flutt úr einni sveit í
aðra og komin á Álftanesið þar sem ég bý með honum Bjarka mínum og
ný ætleiddum syni okkar sem heitir Tumi og er franskur bulldog. Ég
er að vinna hjá Aðalskoðun í Hafnafirði og ætla að vera þar í
einhvern tíma þar sem égget ekki gert upp við mig hvað ég ætla að
verða þegar ég verð stór:
Kv.
Tinna